Stílfærð mynd af Reykjavík

Alhliða lögfræðiþjónusta með fagmennsku og hagkvæmni að leiðarljósi.

Persónuleg og fagleg þjónusta fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Fyrsta ráðgjöf er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Hafa samband
Um Ó.K. Lögmenn

Ó.K. Lögmenn veita einstaklingum og fyrirtækjum almenna lögfræðiþjónustu, með áherslu á persónulega ráðgjöf, traust samskipti og vandaða úrlausn mála.

Stofan er rekin af Ólafi Karli Eyjólfssyni, lögmanni með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti. Áhersla er lögð á aðgengilega ráðgjöf, skýra réttarstöðu og markviss næstu skref í hverju máli.

Sérsvið

Helstu sérsvið stofunnar.

Umfangsmikil reynsla af ráðgjöf og úrlausn ágreiningsmála fyrir stéttarfélög og fyrirtæki, útreikningi launa samkvæmt gildandi kjarasamningum og málflutningi fyrir félagsdómi.

Víðtæk reynsla og þekking vegna skilnaðarmála, gerðar erfðaskráa og kaupmála og forsjármála.

Aðstoð vegna fasteignaviðskipta og ágreinings sem af þeim getur risið, meðal annars vegna galla og annarra vanefnda.

Verjendastörf fyrir sakborninga.

Áratuga reynsla af gerð verk- og þjónustusamninga fyrir sveitarfélög og fyrirtæki vegna útboða og annarra framkvæmda og þjónustu.

Umtalsverð reynsla og þekking á verkefnum tengdum atvinnurekstrarbanni. Tökum að okkur verkefni málsvara þeirra sem ætlað er að dæma í atvinnurekstrarbann.

Ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja í greiðsluerfiðleikum, meðal annars um úrræði, samninga við kröfuhafa og gjaldþrotaskipti.

Ráðgjöf

Fyrsta ráðgjöf hjá Ó.K. Lögmönnum er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Um stofuna

Ólafur Karl Eyjólfsson

Ólafur Karl Eyjólfsson er lögmaður með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti. Hann hefur starfað við lögfræði frá árinu 2005 og býður persónulega, faglega og kostnaðarmeðvitaða þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Ólafur Karl Eyjólfsson, lögmaður